Ţriđjudagur, 7. September, 2010

Langur fimmtudagur

Fimmtudaginn 9.september verður langur fimmtudagur hjá Bílabúð Benna í samstarfi við Lexi.is.  10-70% afsláttur á fatnaði, varahlutum og olíum.  Grillað verður fyrir gesti og gangandi og jaðarstemning á svæðinu.
Laugardagur, 4. September, 2010

Opnunartími um helgina

Laugardaginn 4. september verður dekkjaverkstæði okkar og Chevrolet salurinn á Tangarhöfðanum opnir. Chevrolet salurinn frá 12 - 16 og dekkjaverkstæðið frá 11 - 14. Notaðir bílar á Bíldshöfðanum eru með opið frá 12 - 16. Heitt verður á könnunni.

Laugardagur, 28. Ágúst, 2010

Rýmingarsala á bílaleigubílum hjá Sixt

Það er orðið æ algengara að bílaleigur bregðist við árstíðarbundnum sveiflum markaðarins með því að aðlaga bílaflota sinn að eftirspurn og yngja upp bílaflota landsmanna í leiðinni. Í ljósi þessa mun bílaleigan Sixt, eftir annasamt sumar, hafa rýmingarsölu á nokkrum fjölda bíla frá sér. Bílarnir eru allir frá tveggja til fjögurra mánaða gamlir, árgerð 2010, og hafa allir fengið vandaða umönnun hjá starfsfólki Sixt.
Fimmtudagur, 19. Ágúst, 2010

Stórtónleikar á Menningarnótt

Chevrolet, Bylgjan og Exton standa fyrir stórtónleikum á Ingólfstorgi á Menningarnótt þar sem fram koma hljómsveitirnar Prófessorinn og memfismafían, KK, Hjaltalín, Mannakorn með Ellen og Hjálmar.
Fimmtudagur, 12. Ágúst, 2010

Chevrolet slćr í gegn

Chevrolet er mest seldi bíllinn á Íslandi í júlí.  Nýjustu árgerðirnar af Chevrolet hafa komið sterkar inn og fengið frábærar móttökur hjá Íslendingum. Því til sönnunar er sú staðreynd að í júlímánuði stóð Chevrolet uppi sem söluhæsti bílategundin á Íslandi.
Föstudagur, 2. Júlí, 2010

Fékk Spark í sex mánuđi

Dreginn hefur verið út sigurvegari í Reynsluakstursleik Chevrolet á Íslandi, sem Bílabúð Benna stóð fyrir, frá 29. maí til 18. júní sl.  Rúmlega þúsund manns komu í sýningarsal Chevrolet á Tangarhöfða og komust í vinningspottinn með því að reynsluaka nýjum Chevrolet að eigin vali.  Heppinn vinningshafi var dreginn út í beinni á Bylgjunni og hlaut afnot af glænýjum Chevrolet Spark í sex mánuði.

 

Mánudagur, 28. Júní, 2010

Engum tókst ađ slá holu í höggi

Á laugardaginn fór fram "Hola í höggi" keppni Bílabúðar Benna og Fitness Sport, engum tókst þó að vinna sér inn bílinn í þetta skiptið.  Slegið var af 13. holunni á Urriðavellinum eftir forkeppni um morguninn þar sem tólf keppendur komust áfram úr vippkeppni. Þeir fengu svo tækifæri til að slá af hvítum teig á 13. holunni í von um að fara holu í höggi og vinna sér inn Porsche Cayenne Diesel.

Föstudagur, 25. Júní, 2010

Hola í höggi -vinnur ţú Porsche um helgina?

Í dag, föstudaginn 25.júní hófst þriðja mót Eimskipa- mótaraðarinnar, Canon mótið, og stendur fram á sunnudaginn 27. júní.   Á laugardeginum 26. júní, munu Fitness Sport, Golfsamband Íslands og Bílabúð Benna standa fyrir “hola í höggi” keppni.


Mánudagur, 21. Júní, 2010

Chevrolet bílasýning á Snćfellsnesi

Þriðjudaginn n.k. munu fulltrúar frá Chevrolet á Íslandi koma í heimsókn á Snæfellsnesið. Til sýnis verða nýjir bílar frá Chevrolet fyrir alla til að skoða og reynsluaka. Meðal þeirra bíla sem verða á staðnum er hinn nýji Chevrolet Spark sem frumsýndur var á 35 ára afmælisdegi Bílabúðar Benna.  
Fimmtudagur, 10. Júní, 2010

Bíladagur Toyo Tires og Bílabúđar Benna

Þeir sem hafa áhuga á bílum og bílasporti mega ekki missa af fjörinu á laugardaginn. Þá munu Bílabúð Benna , Toyo Tires, Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar (AÍH) og Kvartmíluklúbburinn efna til bílafjörs. Dagskráin er þétt skipuð af spennandi og skemmtilegum viðburðum.
 1 2 
 
 
Bílabúđ Benna | Vagnhöfđa 23 | Sími 590-2000 | Benni@benni.is