Bílabúð Benna styrkir 200 fjölskyldur

skrifað föstudagur, 18. desember, 2015
Mynd:
Margrét Beta Gunnarsdóttir frá Bílabúð Benna, Aðalheiður Frankdóttir, Lára Axelsdóttir, Sveingerður Hjartardóttir og Margrét K. Sigurðardóttir frá Mæðrastyrksnefnd og Benedikt Eyjólfsson frá Bílabúð Benna. 
Mynd: Margrét Beta Gunnarsdóttir frá Bílabúð Benna, Aðalheiður Frankdóttir, Lára Axelsdóttir, Sveingerður Hjartardóttir og Margrét K. Sigurðardóttir frá Mæðrastyrksnefnd og Benedikt Eyjólfsson frá Bílabúð Benna.

Eins og undanfarin ár hafa eigendur Bílabúðar Benna ákveðið að styrkja 200 fjölskyldur sem þurfa á aðstoð að halda yfir hátíðarnar.

“Það er varla til göfugra starf en það sem Mæðrastyrksnefnd rækir og því er ánægjulegt að geta lagt því málefni lið. Við hvetjum þá sem hafa tök á að gera slíkt hið sama, því víða þrengir að,” sögðu hjónin Margrét Beta Gunnarsdóttir og Benedikt Eyjólfsson, við afhendingu á 200 hamborgarhryggjum frá Ali, til Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur.