Dregið í Toyo leiknum

skrifað miðvikudagur, 2. nóvember, 2016
Vinningshafinn Sigurbjorg Sara SveinsdottirVinningshafinn Sigurbjorg Sara Sveinsdottir

Nesdekk og Bílabúð Benna hafa staðið fyrir leiknum, “Toyo öryggi í kortunum”, á Bylgjunni að undanförnu.

Þátttakan var frábær, en í honum voru tvær umfelganir dregnar út í beinni á Bylgjunni daglega í tíu daga. 20 bíleigendur fengu því gjafabréf á ókeypis umfelgun á Nesdekk verkstæðum og endursöluaðilum dekkja frá Bílabúð Benna um land allt. Í lok leiks var svo aðalvinningurinn, heill umgangur af Toyo harðskeljadekkjum, dreginn úr pottinum og upp kom nafnið Sigurbjörg Sara Sveinsdóttir.
Sigurbjörg Sara býr með fjölskyldu sinni í Hveragerði og á því oft erindi í höfuðstaðinn. Færðin á Hellisheiðinni er fljót að breytast og því koma Toyo harðskeljadekkin sér sérstaklega vel - til öryggis.
Við hjá Bílabúð Benna óskum Sigurbjörgu til hamingju með nýju dekkin og sendum bestu kveðjur og þakkir til allra þátttakenda í Toyo leiknum.