Porsche tilbúinn í titilvörn í þolakstri

Nýr Porsche 919 Hybrid

skrifað miðvikudagur, 30. mars, 2016
Porsche_919_Hybrid_Model_2016aPorsche_919_Hybrid_Model_2016a

Porsche hreppti heimsmeistaratitilinn í þolakstursmótaröðinni í fyrra með Porsche 919 Hybrid bílnum.

Þetta var aðeins í annað skiptið sem Porsce tók þátt í keppninni eftir langt hlé. Mikil pressa er því á að Porsche endurtaki leikinn í ár. Af því tilefni afhjúpaði Porsche nú á dögunum nýjan fulltrúa sinn í þolaksturskeppnum ársins, erfiðustu þolraunum sem ökumenn og bílasmiðir taka þátt í á hverju ári.

Porsche kynnti þar til sögunnar þriðju kynslóðina af 919 Hybrid bílnum í Frakkalandi á dögunum og miðað við þær tæknilegu breytingar sem gerðar hafa verið á bílnum er morgunljóst að ekkert verður slegið af hjá Porsche í ár.

Í fáum orðum má segja að helsta þróunin milli kynslóða felist öðru fremur í meira vélarafli, breytilegu straumlínulagi, sem hægt er að aðlaga loftmótstöðunni á mismunandi keppnisbrautum og svo í þyngdarminnkun sem náðst hefur fram í nokkrum bíl- og vélarhlutum.

Á frumsýningu nýja 919 Hybrid bílsins var haft eftir Fritz Enzinger hjá Porsche: “Þessi nýja 900 hestafla orkusprengja er klár í titilvörnina í þolaksturskeppnum ársins.“
Hér geturðu svalað forvitninni frekar um nýjan Porsche 919 Hybrid: Porsche News

Porsche_919_Hybrid_Model_2016bPorsche_919_Hybrid_Model_2016c