Þrenna hjá Porsche.

Skorar hæst í ánægjukönnun hjá bandarískum bíleigendum

skrifað föstudagur, 19. júní, 2015
Þrenna hjá Porsche.

Í þriðja skipti í röð trónir Porsche á toppi lista sem byggir á heildarmati bandarískra bílaeigenda, líkt og árin 2013 og 2014.

Að rannsókninni stendur, sem fyrr, eitt virtasta markaðsrannsóknarfyrirtæki Bandaríkjanna, J.D. Power and Associates.

“Velgengni Porsche byggir alfarið á ánægju kaupendanna,” segir Matthias Müller, í framkvæmdastjórn Porsche AG. “Við lítum á þessar viðurkenningar sem staðfestingu á því að okkar markvissa þróunarvinna og ströngu gæða- og hönnunarstaðlar eru að skila sér í einstakri akstursupplifun og – ánægju hjá eigendum Porsche.”

Sem dæmi er Porsche 911 sportbíllinn að landa þessari viðurkenningu í fjórða skipti í röð. Boxster toppar í þriðja skipti í sínum flokki og Porsche Macan sportjeppinn tekur fyrsta sætið í sínum flokki í sinni fyrstu tilraun. Glæsilegur árangur Cayenne sportjeppans og glæsikerrunnar Panamera Gran Turismo gera það að verkum að Porsche landar 5 verðlaunasætum í þremur flokkum.

Til grundvallar valinu á hverju ári liggur langtíma áreiðanleikarannsókn, sem snýst um að gera úttekt á gæðum bíla á Bandaríkjamarkaði og hefur verið framkvæmd árlega, samfellt í 29 ár, af J.D. Power and Associates. Niðurstaðan nú byggir á reynslu tug þúsunda bandarískra bílaeigenda sem átt hafa 2015 árgerðir af Porsche á tímabilinu frá febrúarmánuði og út maí.