Þjónusturáðgjafi

Bílabúð Benna leitar að þjónusturáðgjafa sem vill vinna í frábæru teymi með leiðandi bílaframleiðendum. Umsækjandi þarf að koma vel fram, vera þjónustulipur, samviskusamur og geta sýnt frumkvæði í starfi. Um er að ræða 100% stöðu í framtíðarstarfi.

Hæfniskröfur:
• Reynsla af sölumennsku skilyrði
• Framúrskarandi þjónustulund
• Góð færni í mannlegum samskiptum
• Útsjónarsemi og sjálfstæð vinnubrögð
• Gott vald á íslensku og ensku
• Góð tölvukunnátta

Starfssvið:
• Móttaka og aðstoð við viðskiptavini
• Ráðgjöf, tímabókanir og upplýsingagjöf til viðskiptavina
• Undirbúningur og uppgjör þjónustuverka
• Gerð tilboða, reikninga og verkáætlana
• Ráðgjöf og sala varahluta

Nánari upplýsingar um starfið veitir Úlfar Kristinsson, ulfar@porsche.is. Umsóknafrestur er til og með 31. mars.