Bíll ársins í neyðarþjónustu.
hjá fyrirtækjum í neyðarþjónustu.
Opel Astra, Bíll ársins í Evrópu 2016, gerir sig gildandi á sífellt fleiri sviðum eftir því sem Opel annar eftirspurn.
Opel Astra er með eindæmum sterkur og traustur og fyrir vikið þykir hann henta sérlega vel í verkefni þar sem mikið liggur við og ekkert má klikka.
Nýlega kynnti Opel til sögunnar sérstaka útfærslu af Sports Tourer langbaksútgáfunni , sem er sniðinn fyrir fyrirtæki í neyðarþjónustu; slökkvilið og sjúkrastofnanir.
Í grunninn kemur bíllinn afar vel búinn, nýjum, framúrskarandi tæknilausnum hvað varðar allan samskipta- og öryggisbúnað. Þegar við bætast svo 190 kg léttari hönnun miðað við forverann og öflug og spræk 136 hestafla díselvél með sex þrepa sjálfskiptinu, þá er kominn bíll sem eru allir vegir færir.
Fyrirtæki og stofnanir sem sinna neyðarþjónustu voru hafðir með í ráðum við mótun á þeim Opel Astra Sports Tourer sem er sérbúinn fyrir neyðarþjónustu og verða fyrstu eintökin mætt á neyðarvaktina í haust á götum Evrópu.
Nánari upplýsingar um Opel Astra Sports Tourer má finna hér
Eldri fréttir
-
06. des 2024Pakkajól Benna
-
03. des 2024Frí Porsche vetrar- og öryggisskoðun í desember.
-
16. okt 2024Rafmagnaður Torres EVX frumsýndur á laugardag
-
09. okt 2024Porsche 911 GT3 RS frumsýndur á Íslandi
-
24. sep 2024Nýr Macan frumsýndur á laugardag
-
02. sep 2024Turbo dagar 2.-7. september
-
10. jún 2024Rafmagnaðir sumardagar Porsche
-
04. jún 2024Nýr alrafmagnaður Taycan frumsýndur
-
21. maí 2024KGM sýning 25. maí
-
07. maí 2024911 dakar sýning á laugardag