Birna er í skýjunum

-vann í Toyo-leiknum !

skrifað þriðjudagur, 3. nóvember, 2015
Birna er í skýjunum

Bílabúð Benna og Nesdekk hafa staðið fyrir Toyo leiknum, “Toyo í kortunum- hvernig sem viðrar”, á Bylgjunni frá 20.- 30. október.

Þátttakan var frábær, en í honum voru tvær umfelganir dregnar út í beinni á Bylgjunni daglega í tíu daga.

Aðalvinningurinn, heill umgangur af Toyo harðskeljadekkjum, var svo dreginn út 1. nóvember og upp úr pottinum kom nafnið Birna Gísladóttir.

Birna er í skýjunum með vinninginn. Þó að hún starfi sem flugfreyja og sé öllu vön í háloftunum, koma Toyo harðskeljadekkin sér afar vel, því til stóð að dekkja upp fjölskyldubílinn fyrir veturinn, til öryggis. Þá dugar ekkert minna en það besta; Toyo harðskeljadekk.

Við hjá Bílabúð Benna óskum Birnu og fjölskyldu hennar til hamingju með nýju dekkin og sendum bestu kveðjur til allra þátttakenda í Toyo leiknum okkar.