Fengu Chevrolet nr. 100 og 101
Í síðustu viku fór fram afhending á 100. og 101. Chevrolet bílunum frá áramótum. Það vildi svo skemmtilega til að það voru hjón sem fengu afhenta báða bílana sem eru af gerðinni Spark.
"Við höfum fundið fyrir miklum meðbyr hjá íslenskum neytendum. Það endurspeglar þá þróun sem hefur verið á öllum mörkuðum heims; Chevrolet er hvarvetna að stimpla sig inn fyrir gæði og gott verð,“ segir Benedikt Eyjólfsson framkvæmdastjóri hjá Bílabúð Benna. Hann segir og að Chevrolet leggi allt kapp á að gera 100. afmælisárið sem glæsilegast, þar sem Chevrolet muni kynna heilan flota af nýjungum.
Við óskum Guðbjörgu og Gunnari til hamingju með nýju Chevrolet bílana.
Á mynd: Halldór Gunnlaugsson sölufulltrúi hjá Bílabúð Benna afhendir hjónunum Guðbjörgu Benónýsdóttur og Gunnari Sizemore lyklana af tveimur Chevrolet Spark, bílum nr.100 og 101 frá Bílabúð Benna á árinu.