Ímynd Opel vex hraðast
Undanfarin misseri hefur mikil vinna verið lögð í nýja staðfærslu Opel á markaðnum og árangurinn hefur ekki látið á sér standa.
Nú er ljóst að Opel stendur uppi sem sigurvegari í ímyndarúttekt sem hið virta fagrit Auto Motor und Sport framkvæmdi á meðal lesenda sinna samhliða „Best Cars 2016“ valinu.
Opel vex hraðast þegar litið er til einkunna sem gefnar eru af viðskiptavinum bílaframleiðenda. Áreiðanleiki var sá flokkur sem 53% Opel eigendur tengdu sterkt við bílinn og er það tíu prósenta hækkun frá síðasta ári.
Þá hrósuðu 69 % Opel merkinu í flokknum „vel peninganna virði“.
Það vekur líka athygli að Opel eigendur voru ekki einir um að tjá ánægju sína með Opel merkið, því um 49% af öllum þátttakendum vildu meina að Opel væri „í tísku“ og mátu hann því betri en mörg virðuleg merki í þessu tilliti.
„Við erum mjög ánægð með einkunn þessara upplýstu lesenda. Það hvetur okkur til dáða og gefur fullvissu um að við erum á réttri braut bæði hvað varðar tækninýjungar og framboð á nýjum bílgerðum,“ segir Tina Müller stjórnarmaður hjá Opel.
Einsog fram hefur komið hlaut Opel tvenn „Best Cars 2016“ verðlaun. Hinn framúrstefnulegi Opel Adam varð hlutskarpastur í smábílaflokki með 26% allra atkvæða. Þá hlaut nýja IntelliLux LED matrix framljósakerfið frá Opel, alþjóðlegu „Paul Pietsch viðurkenninguna 2016“ fyrir framúrskarandi hátæknilausnir.
Eldri fréttir
-
06. des 2024Pakkajól Benna
-
03. des 2024Frí Porsche vetrar- og öryggisskoðun í desember.
-
16. okt 2024Rafmagnaður Torres EVX frumsýndur á laugardag
-
09. okt 2024Porsche 911 GT3 RS frumsýndur á Íslandi
-
24. sep 2024Nýr Macan frumsýndur á laugardag
-
02. sep 2024Turbo dagar 2.-7. september
-
10. jún 2024Rafmagnaðir sumardagar Porsche
-
04. jún 2024Nýr alrafmagnaður Taycan frumsýndur
-
21. maí 2024KGM sýning 25. maí
-
07. maí 2024911 dakar sýning á laugardag