Lækkum verð á öllum nýjum bílum

Bílabúð Benna hefur ákveðið að lækka verð um allt að 7% á nýjum bílum vegna styrkingar krónunnar. Sem dæmi má nefna að Chevrolet Cruze station lækkar um 200 þús. kr., fer úr 3.190 þús. kr. í 2.990 þús. kr. og Chevrolet Captiva sportjeppinn lækkar um 500 þús. kr., fer úr 6.490 þús. kr. í 5.990 þús. kr.
„Við höfum alltaf kappkostað að láta viðskiptavini njóta hagstæðara gengis. Síðastliðið vor lækkuðum við verð verulega vegna styrkingar krónunnar og núna gerum við það sama. Um leið leggjum við okkar af mörkum til að stuðla að stöðugleika og tryggja kaupmáttinn,“ segir Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar Benna.
Chevrolet Spark, ódýrasti nýi smábíllinn á markaðnum, lækkar um 54 þús. kr. og kostar frá 1.736 þús. kr. Þess má einnig geta að nú býðst viðskiptavinum Bílabúðar Benna bílalán án lántökugjalda og stimpilgjalda með allt að 75% fjármögnun í allt að 84 mánuði, í samstarfi við Lykil.
Eldri fréttir
-
27. mar 2025Frumsýning: 50 ára afmælisútgáfa 911 Turbo
-
05. mar 2025Cayenne sýningabílar á sérkjörum.
-
21. jan 2025Musso Grand frumsýning
-
23. des 2024Opnunartími yfir hátíðarnar
-
06. des 2024Pakkajól Benna
-
03. des 2024Frí Porsche vetrar- og öryggisskoðun í desember.
-
16. okt 2024Rafmagnaður Torres EVX frumsýndur á laugardag
-
09. okt 2024Porsche 911 GT3 RS frumsýndur á Íslandi
-
24. sep 2024Nýr Macan frumsýndur á laugardag
-
02. sep 2024Turbo dagar 2.-7. september