Metár hjá Opel
Frá höfuðstöðvum Opel í Rüsselheim í Þýskalandi berast þær fréttir að Opel sé að sýna bestu sölutölur Opel síðustu fjögurra ára, þrátt fyrir brotthvarf Opel af Rússlandsmarkaði. Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri hefur fyrirtækið afgreitt yfir 1,1 milljón bíla á síðasta ári, 2015. Viðbótin nemur 35.000 bílum og með þessu hefur fyrirtækið því aukið verulega við sig, jafnt í magni sem og markaðshlutdeild á árinu 2015. Markaðshlutdeildin stendur nú í 5,8% í Evrópu. „Öflug markaðssókn okkar hefur skilað Opel besta árangri frá árinu 2011 og allt bendir til að velgengnin haldi áfram 2016,” er haft eftir Peter Christian Küspert, yfirmanni söludeildar Opel. „Bjartsýni okkar helgast m.a. af þeim ótrúlegu viðtökum sem Opel Astra, hin nýja, hefur fengið á markaðnum. Þrátt fyrir að Astra hafi byrjað í sölu í nóvember, eru pantanir nú þegar komnar yfir 80.000 bíla og við bindum líka miklar vonir við Astra Sports Tourer útgáfuna sem frumsýnd verður í vor.” Aukningin er heilt yfir í öllum tegundum, en sportjeppinn Opel Mokka sker sig úr með yfir 16% vöxt.Opel Corsa er með 6% bætingu frá fyrra ári. Velgengni atvinnubílana frá Opel er einnig athyglisverð, en vöxturinn í þeim flokki er heil 24% miðað við 2014 og dreifist nokkuð jafnt á alla línuna; Vivaro, Movano og Combo. Menn eru því kampakátir hjá Opel þessa dagana.
Eldri fréttir
-
06. des 2024Pakkajól Benna
-
03. des 2024Frí Porsche vetrar- og öryggisskoðun í desember.
-
16. okt 2024Rafmagnaður Torres EVX frumsýndur á laugardag
-
09. okt 2024Porsche 911 GT3 RS frumsýndur á Íslandi
-
24. sep 2024Nýr Macan frumsýndur á laugardag
-
02. sep 2024Turbo dagar 2.-7. september
-
10. jún 2024Rafmagnaðir sumardagar Porsche
-
04. jún 2024Nýr alrafmagnaður Taycan frumsýndur
-
21. maí 2024KGM sýning 25. maí
-
07. maí 2024911 dakar sýning á laugardag