Nýtt myndband frá Kapelluhrauni

skrifað föstudagur, 11. september, 2015
Nýtt myndband frá Kapelluhrauni

Bílabúð Benna stóð fyrir skemmtilegri uppákomu á nýrri kappakstursbraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni, á dögunum.

Til landsins voru fengnir m.a. Porsche Boxster GTS og Porsche 911 Targa 4s bílar sem íslenskum ökumönnum gafst tækifæri á að aka á og takast á við hinar ýmsu þrautir á sérhannaðri kappakstursbrautinni.

Sérþjálfaður Porsche-kennari var einnig á landinu sem leiðbeindi ökumönnunum við að takast á við bílana.


Hér má sjá myndbandið