Opel gripir á sýningu!

skrifað föstudagur, 22. maí, 2015
Opel Astra OPC og CascadaOpel Astra OPC og Cascada

Við fluttum inn nokkra afar spennandi bíla fyrir bílasýninguna “Allt á hjólum” í Fífunni á dögunum.

Þar á meðal voru tveir bílar frá Opel, blæjubíllinn magnaði Opel Cascada og hinn þrælöflugi 280 hestafla Opel Astra í OPC útfærslu.

OPC stendur fyrir Opel Performance Center, en það er sérstök deild sem sérhæfir sig í smíðum á keppnisbílum, ásamt sérstökum OPC útgáfum af Corsa, Astra og Insignia, sem seldir eru til almennings.

Þessir bílar verða sendir utan um miðjan júnímánuð og því enn tækifæri til að skoða þessa fallegu gripi í sýningarsal Opel í Tangarhöfða.