Porsche Cayman GT4 og 718 Boxster frumsýndir

skrifað föstudagur, 12. ágúst, 2016
718 Boxster og Cayman GT4718 Boxster og Cayman GT4

Það er sérstakt tilefni til að gera sér glaðan dag á Stórsýningu Porsche hjá Bílabúð Benna á laugardaginn.

„Frumsýndir verða glæsigripirnir Porsche 718 Boxster og Cayman GT4.

Cayman GT4 er framleiddur í takmörkuðu upplagi og hefur hlotið einróma lof bílablaðamanna um allan heim,“ segir Thomas Már Gregers, sölustjóri Porsche á Íslandi. „Boxster bera núna númer eins og aðrir sportbílar í Porsche fjölskyldunni og er það númerið 718. Hann er kominn með feiki aflmikla 4 cyl. vél með túrbínu. Með því hefur koltvísýringsgildið og lækkað umtalsvert sem gerir það að verkum að bíllinn er á hagstæðara verði en áður.

Í tilefni af frumsýningunni sláum við upp stórsýningu og fluttum til landsins sérstaklega nokkrar verulega spennandi útfærslur af Porsche, sem munu glansa í salnum með frumsýningarstjörnunum, “ segir Thomas.

Stórsýning Porsche verður haldin í Porsche salnum, Vagnhöfða 23, á laugardaginn 13. ágúst, frá kl. 12 til 16.
Allir eru velkomnir.

718 Boxster
Cayman GT4