Porsche tilbúinn í titilvörn í þolakstri
![Porsche_919_Hybrid_Model_2016a](https://benni.is/thumb/350/0/images/sent/56fbf8b5298ac.jpg)
Porsche hreppti heimsmeistaratitilinn í þolakstursmótaröðinni í fyrra með Porsche 919 Hybrid bílnum.
Þetta var aðeins í annað skiptið sem Porsce tók þátt í keppninni eftir langt hlé. Mikil pressa er því á að Porsche endurtaki leikinn í ár. Af því tilefni afhjúpaði Porsche nú á dögunum nýjan fulltrúa sinn í þolaksturskeppnum ársins, erfiðustu þolraunum sem ökumenn og bílasmiðir taka þátt í á hverju ári.
Porsche kynnti þar til sögunnar þriðju kynslóðina af 919 Hybrid bílnum í Frakkalandi á dögunum og miðað við þær tæknilegu breytingar sem gerðar hafa verið á bílnum er morgunljóst að ekkert verður slegið af hjá Porsche í ár.
Í fáum orðum má segja að helsta þróunin milli kynslóða felist öðru fremur í meira vélarafli, breytilegu straumlínulagi, sem hægt er að aðlaga loftmótstöðunni á mismunandi keppnisbrautum og svo í þyngdarminnkun sem náðst hefur fram í nokkrum bíl- og vélarhlutum.
Á frumsýningu nýja 919 Hybrid bílsins var haft eftir Fritz Enzinger hjá Porsche: “Þessi nýja 900 hestafla orkusprengja er klár í titilvörnina í þolaksturskeppnum ársins.“ Hér geturðu svalað forvitninni frekar um nýjan Porsche 919 Hybrid:Porsche News
Eldri fréttir
-
11. júl 2017Lokað á laugardögum í júlí
-
10. jún 2024Rafmagnaðir sumardagar Porsche
-
04. jún 2024Nýr alrafmagnaður Taycan frumsýndur
-
21. maí 2024KGM sýning 25. maí
-
07. maí 2024911 dakar sýning á laugardag
-
30. apr 2024Nýr Cayenne Turbo GT frumsýndur á laugardag
-
24. apr 2024Opnunartímar Bílabúðar Benna, 24. apríl út júní.
-
07. mar 2024Lokað laugardaginn 9 mars
-
21. des 2023Opnunartími yfir jól og áramót
-
15. ágú 2023Porsche sýning á Menningarnótt