Söluhæsti júlí í sögu Porsche
Góð upphitun fyrir bílasýninguna í Frankfurt
Um 20,733 nýir kaupendur bættust í hóp nýrra Porsche eigenda í júlímánuði. Þetta er metfjölgun og aukning uppá 22% frá sama tímabili í fyrra.
Af þessum fjölda hafa t.d. 1,900 nýir 911 og Boxster sportbílaeigendur væntanlega gripið tækifærið og fangað sumarið “topplausir”. Yfir heildina litið voru afgreiddir 135,000 nýir Porsche bílar fyrstu sex mánuði ársins. Það jafngildir 29% aukningu frá fyrra ári.
“Seinni helmingur ársins byrjaði frábærlega með söluhæsta júlímánuði sögunnar hjá okkur,” segir Bernhard Maier á sölu – og markaðssviði Porsche AG. “Og við ætlum okkur ekkert að slá af. Viðskiptavinir okkar og aðdáendur Porsche mega því strax byrja að láta sig hlakka til bílasýningarinnar í Frankfurt í september – það verður eitthvað.”
46% söluaukning í Þýskalandi
Þýskir neytendur tryggðu sér 3,200 nýja Porsche bíla í júlí, sem svarar til 46% söluaukningar.
Í Bandaríkjunum fengu 4.700 manns nýjan Porsche afhentan, sem er 10% aukning á sölu og jafnframt stærsti einstaki markaður Porsche í heiminum í júlímánuði 2015. Af einstökum Porsche tegundum náði sportjeppinn Macan að skáka öllum við á heimsvísu með um 7.800 bíla selda.
Eldri fréttir
-
06. des 2024Pakkajól Benna
-
03. des 2024Frí Porsche vetrar- og öryggisskoðun í desember.
-
16. okt 2024Rafmagnaður Torres EVX frumsýndur á laugardag
-
09. okt 2024Porsche 911 GT3 RS frumsýndur á Íslandi
-
24. sep 2024Nýr Macan frumsýndur á laugardag
-
02. sep 2024Turbo dagar 2.-7. september
-
10. jún 2024Rafmagnaðir sumardagar Porsche
-
04. jún 2024Nýr alrafmagnaður Taycan frumsýndur
-
21. maí 2024KGM sýning 25. maí
-
07. maí 2024911 dakar sýning á laugardag