Stefnir í metár hjá Chevrolet á Íslandi

Fréttir af lélegri bílasölu á Íslandi á árinu hafa verið áberandi undanfarin misseri. Sú er þó ekki raunin í öllum vörumerkjum, því finna má dæmi um hreina aukningu jafnt í magni sem markaðshlutdeild. Athyglin beinist þá einkum að Chevrolet sem hefur styrkt stöðu sína umtalsvert á árinu.
Nú er svo komið að það sem af er ári er Chevrolet í þriðja sæti, á eftir Toyota og Volkswagen, hvað varðar sölu bíla til almennings. Þar af trónir Chevrolet Spark á toppi listans yfir mest seldu smábílana og varð uppseldur í október sl. en tæplega annar hver smábíll sem seldur er hér á landi er Chevrolet Spark.
Það er því forvitnilegt að skoða hvað liggur að baki góðu gengi Chevrolet.
“Það er alls ekki sjálfgefið að fólk fjárfesti í nýjum bílum þegar hart er í ári, þess vegna er útkoman hjá okkur sérlega ánægjuleg”, segir Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri bílasviðs hjá Bílabúð Benna. “Nú styttist í að við afhendum Chevrolet númer 600 á þessu ári og er það mesta magn sem selst hefur af Chevrolet á einu ári hér á landi.”
“Íslendingar hafa gert Chevrolet að sínu merki í æ ríkari mæli.
Fyrir því liggja margar ástæður að okkar mati. Með stuðningi Chevrolet höfum við getað boðið fólki mjög vel búna bíla á afar hagstæðu verði og á síðustu tveimur árum hafa orðið miklar breytingar á framboði okkar af bílum. Eins höfum við lagt mikla vinnu í að bæta þjónustu umboðsins í öllu tilliti. “
“En þegar öllu er á botninn hvolft er svona góður árangur aðeins mögulegur af því að Chevrolet bílarnir hafa gæðin með sér. Allt skilar þetta sér á endanum í reynslu kaupenda og umtali þeirra á markaðnum. Við upplifum nánast daglega að fólk er að deila ánægju sinni með kaupin á Chevrolet og einsog við vitum er ánægður viðskiptavinur jú besta auglýsingin,” segir Björn að lokum.
Chevrolet á Íslandi ætlar að enda árið með því að bjóða fólki tækifæri til að eignast sýningar- og reynsluakstursbíla á góðum kjörum.
Eldri fréttir
-
27. mar 2025Frumsýning: 50 ára afmælisútgáfa 911 Turbo
-
05. mar 2025Cayenne sýningabílar á sérkjörum.
-
21. jan 2025Musso Grand frumsýning
-
23. des 2024Opnunartími yfir hátíðarnar
-
06. des 2024Pakkajól Benna
-
03. des 2024Frí Porsche vetrar- og öryggisskoðun í desember.
-
16. okt 2024Rafmagnaður Torres EVX frumsýndur á laugardag
-
09. okt 2024Porsche 911 GT3 RS frumsýndur á Íslandi
-
24. sep 2024Nýr Macan frumsýndur á laugardag
-
02. sep 2024Turbo dagar 2.-7. september