Team Opel í WOW Cyclothon 2016

skrifað þriðjudagur, 14. júní, 2016
Team OpelTeam Opel

Wow Cyclothon 2016 hjólreiðakeppnin verður verður ræst 15. júní. Nú hefur Bílabúð Benna, umboðsaðili Opel á Íslandi, gengið til samstarfs við hóp af öflugu hjólreiðafólki, sem keppa mun undir heitinu Team Opel og hjóla í kringum landið til stuðnings Hjólakrafti.

Samtökin Hjólakraftur starfa undir kjörorðinu: Frá vanvirkni til virkni. Þau hafa að markmiði að hjálpa börnum og unglingum sem hafa á einn eða annan hátt orðið undir í baráttunni við lífstílssjúkdóma og ekki fundið sig í hópíþróttum. „Hjólakraftur heldur námskeið fyrir börn og unglinga af öllum stærðum og gerðum víða um land. Það er gert í samstarfi við ólíka aðila, t.d. þátttakendur sjálfa, foreldra, sveitarfélög, skóla og fleiri.

Bílabúð Benna styrkir Hjólakraft með láni á bíl í tengslum við WOW hjólamótið. Það er okkur sönn ánægja að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni og leggja okkar lóð á vogaskálarnar.

Meðlimir í Team Opel eru: Birgir Gunnarsson, Bragi Freyr Gunnarsson, Fjölnir Björgvinsson, Gunnar Ingason, Gunnar Wedholm Helgason, Hermann Jóhannesson, Ingvi Júlíus Ingvason, Jóhann Thorarensen, Leifur Geir Hafsteinsson og Magnús Andrésson.

★ Hægt verður að fylgjast með Team Opel á Facebooksíðu liðsins Team Opel - WOW 2016 og á Snapchat: wowteamopel
★ Hægt er að heita á Team Opel hér
★ Samtökin Hjólakraftur
★ Uppfært Kort af keppendum Live

Þorvaldur Daníelsson hjá hjólakrafti tekur við lánsbílnum frá Bílabúð Benna, úr hendi Birgis Gunnarssonar sem hjólar með Team OPEL.