Chevrolet Spark
ALLTAF VINSÆLL
Spark er glæsilegur borgarbíll með sterka nærveru. Hann er smár að utan en nógu rúmgóður til að vel fari um 5 fullorðna í sætum. Hágæða smíði og samsetning. Snjöll hönnunaratriði. Lágur rekstrarkostnaður. Og öruggur. Í stuttu máli er Spark einn besti smábíllinn sem völ er á.
5 SÆTI OG GLÆSILEGUR BÚNAÐUR
Innanrými Spark er yfirmáta stílhreint og úthugsað og plássið kemur á óvart. Það fer vel um 5 fullorðna í bílnum. Í miðjustokknum er að finna útvarp með Bluetooth tengingu og þar eru einnig enn fleiri hagnýtar hirslur.
Stjórnrofar og mælar eru nákvæmlega á réttum stað sem er frábært fyrir ökumanninn; innan seilingar eða á sjálfu stýrinu. Nýhannaður mælaklasinn er eins stílhreinn og þeir gerast.
SNJALLAR GEYMSLULAUSNIR OG FARANGURSRÝMI
Hvarvetna í Spark er að finna staði þar sem hægt er að leggja frá sér hluti sem oft fylgja okkur - farsíma, iPod og MP3-spilara, töskur og hvaðeina. Hér eru nokkur dæmi:
- Geymsluhólf í miðjustokki fyrir smáhluti, nafnspjöld, bílastæðamiða o.fl
- Leynihólf fyrir verðmæti
- Tvöfaldur glasahaldari
- Samlitur geymslubakki fyrir ökumann
Þegar stór afturhlerinn á Spark er opnaður blasir við ríkulegt, 170 l, farangursrými. Það er stækkanlegt upp í 873 l með því að fella niður aftursætisbök.
ÖRYGGI ER OKKAR FORGANGSATRIÐI
- Öryggispúðar fyrir sex svæði Vernd til allra átta: Tveir frampúðar, tvær loftpúðagardínur og öryggispúðar í sætum fyrir brjósthol og kvið
- Öryggisbelti og öryggi barna Öll öryggisbelti eru með forstrekkjurum. Í aftursætum eru þrjú 3ja punkta öryggisbelti og staðalbúnaður er ISOFIX festing fyrir barnabílstóla. Spark fékk hámarkseinkunn í öryggisprófun NCAP fyrir varnir fyrir 3ja ára gamla farþega.
- Loftþrýstingsskynjari fyrir hjólbarða Loftþrýstingsskynjari er staðalbúnaður í öllum gerðum Spark. Hann varar ökumann við ef loftþrýstingur er lágur í hjólbörðum. Búnaðurinn stuðlar að auknu öryggi og sparneytni.
- ESC Rafeindastýrð stöðugleikastýring er mikilvægur öryggisbúnaður sem dregur úr hættu á slysum.
Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Chevrolet í síma: 590 2020
Vertu velkomin(n) í sýningarsal Chevrolet að:
- Tangarhöfða 8-12. Reykjavík.
- Njarðarbraut 9, 260 Reykjanesbæ.
Afgreiðslutími:
Tangarhöfða 8-12
- Mán. - fös. kl. 9-18
- Laugardaga kl. 12-16
Bílabúð Benna Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330

Tegundir
Chevrolet Spark Verð og búnaður birt með fyrirvara. Búnaðarlýsing og verð staðfest hjá sölumanni.- 1.2 l bensín
- Tau
- Beinskiptur
- 5
- 1.206
- 82
- 111 við 4800 sn
- 5.0
- 3.595 mm
- 1.522 mm
- 1.522 mm
- 2.375 mm
- 864 kg
- 2.375 mm
- 35 ltr.
- 170 ltr. / 568 ltr.