Söluráðgjafi nýrra og notaðra bíla
Við leitum að söluráðgjafa nýrra og notaðra bíla. Starfið felur í sér kynningu, ráðgjöf og þjónustu vegna bílakaupa. Viðkomandi þarf að hafa haldbæra reynslu af sölustörfum, vera skipulagður, framtakssamur og með mikla þjónustulund.
Starfssvið:
- Sala og ráðgjöf til viðskiptavina
- Móttaka gesta í sýningarsal
- Hafa samband við viðskiptavini með úthringingum
- Gerð tilboða og eftirfylgni
- Afhending bifreiða og eftirþjónusta
Hæfniskröfur:
- Reynsla af sölumennsku
- Góð framkoma og hæfni í samskiptum
- Snyrtimennska
- Útsjónasemi og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð tölvukunnátta
- Gott vald á íslensku, bæði munnlega og skriflega
Umsókn ásamt ferilskrá sendist fyrir 10. febrúar, merkt „Söluráðgjafi nýrra og notaðra bíla“, á netfangið tryggvi@benni.is.
Fullum trúnaði er heitið.