BIFVÉLAVIRKI – BILANAGREININGAR OG VIÐGERÐIR

ERTU MEÐ KEPPNISSKAP OG VILTU VINNA Í SKEMMTILEGU TEYMI?

Bílabúð Benna óskar eftir vönum bifvélavirkja til starfa á þjónustuverkstæði fyrirtækisins. Leitað er að einstaklingi með þægilegt viðmót, keppnisskap og hæfileika til að vinna í teymi.

Hæfniskröfur

  • Sveinspróf í bifvélaviðgerðum - meistarapróf er kostur
  • Að minnsta kosti 4 ára reynsla af viðgerðum
  • Mjög góð tölvukunnátta
  • Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
  • Metnaður og vilji til að ná árangi
  • Reynsla af viðgerðum á tengitvinnbílum er kostur

Starfssvið

  • Viðgerðir og viðhald á bílum frá SsangYong og Porsche
  • Ábyrgðarviðgerðir á bílum í ábyrgð
  • Verðmat viðgerða
  • Önnur verkefni tengd starfinu

Um er að ræða 100% framtíðarstarf.

Mannauðsstefna fyrirtæksins lýsir vilja fyrirtækisins til að vera framúrskarandi vinnustaður sem byggir á sterkri liðsheild, keppnisskapi, jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingum af báðum kynjum.

Bílabúð Benna hefur í 45 ár verið þjónustufyrirtæki bílaáhugamannsins. Fyrirtækið er umboðsaðili Porsche og SsangYong bifreiða. Auk þess að bjóða upp á gott úrval bæði nýrra og notaðra bifreiða sinnir Bílabúð Benna alhliða þjónustu fyrir þessi vörumerki.

Sótt er um starfið á benni@benni.is