BIFVÉLAVIRKI - SÖLUSKOÐANIR
ERTU MEÐ KEPPNISSKAP OG VILTU VINNA Í SKEMMTILEGU TEYMI?
Bílabúð Benna óskar eftir vönum bifvélavirkja til starfa á þjónustuverkstæði fyrirtækisins. Leitað er að einstaklingi með þægilegt viðmót, keppnisskap og hæfileika til að vinna í teymi.
Hæfniskröfur
- Sveinspróf í bifvélavirkjun eða viðamikil reynsla í viðgerðum
- Mjög góð tölvukunnátta
- Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
- Metnaður og vilji til að ná árangi
Starfssvið
- Ástandsskoðanir
- Bilanagreiningar og varahlutaáætlanir
- Verðmat viðgerða
- Önnur tilfallandi verkefni tengd starfinu
Um er að ræða 100% framtíðarstarf.
Mannauðsstefna fyrirtæksins lýsir vilja fyrirtækisins til að vera framúrskarandi vinnustaður sem byggir á sterkri liðsheild, keppnisskapi, jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingum af báðum kynjum.
Bílabúð Benna hefur í 45 ár verið þjónustufyrirtæki bílaáhugamannsins. Fyrirtækið er umboðsaðili Porsche, Opel og SsangYong bifreiða. Auk þess að bjóða upp á gott úrval bæði nýrra og notaðra bifreiða sinnir Bílabúð Benna alhliða þjónustu fyrir þessi vörumerki.
Sótt er um starfið á benni@benni.is